Fáskrúðsfjarðarhlaupið 2018
Fáskrúðsfjarðarhlaupið verður haldið í tólfta sinn föstudaginn 27. júlí 2018.
Fáskrúðsfjarðarhlaupið 2018 verður haldið föstudaginn 27.júlí næstkomandi. Í boði verða þrjár vegalengdir: 5km, 10km og 21km.
Hlaupið verður ræst við gamla grunninn sem er rétt fyrir utan franska hótelið líkt og undanfarin ár.
Ræst verður í 21 km kl.16:00 en kl.17:00 í 5km og 10km.
Vonandi sjáum við sem flesta hlaupara.
Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á netfangið: [email protected] en einnig verður hægt að skrá sig á staðnum.
Þátttökugjald: 1000kr sem rennur svo óskipt til góðra málefna.
Hlaupaleið
Hlaupið er ræst rétt utan við Franska spítalann við Hafnargötu og er hlaupið út með norðurströnd Fáskrúðsfjarðar. Hlaupaleiðin er malbikuð. Þrjár vegalengdir eru í boði; 5, 10 og 21 km. Í hálfa maraþoninu er hlaupið rétt út fyrir Kolfreyjustað og til baka, í 10 km hlaupinu er hlaupið að Brimnesi og til baka og í 5 km hlaupinu er snúið við nálægt Kappeyri. Sjá kort af hlaupaleiðinni undir flipanum hér til vinstri.
Athugið að ræst verður í 21km hlaupið kl. 16 en í bæði 5km og 10km hlaupin klukkustund síðar eða kl. 17.
Tímataka og drykkjarstöðvar
Tímataka er á öllum vegalengdum. Í 5 km hlaupinu er drykkjarstöð á snúningspunkti nálægt Kappeyri, í 10 km hlaupinu er drykkjarstöð við Brimnes (5km) þar sem snúið er við. Í hálfa maraþoninu eru drykkjarstöðvar við Kappeyri (2,5km), við Brimnes (5km), við Kolfreyjustað (10km) þar sem snúið er við og svo aftur við Brimnes og Kappeyri. Boðið verður upp á drykki og hressingu í marki að hlaupi loknu.
Skráning
Mælt er með því að skrá sig fyrirfram í hlaupið á netfanginu [email protected] en einnig verður hægt að skrá sig á staðnum frá kl. 15:30 á hlaupdag. Mæting er rétt utan við Franska spítalann við Hafnargötu eða við gamla grunninn og er hlaupið ræst þaðan.
Verðlaun
Verðlaunapeningar eru fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna í 5, 10 og 21km hlaupinu, einnig eru veittir bikarar fyrir fyrsta sæti kvenna og karla á öllum vegalengdum.
Saga hlaupsins
Fáskrúðsfjarðarhlaupið var fyrst haldið árið 2007 en þá var hlaupið frá Franska spítalanum þar sem hann stóð í Hafnarnesi, sunnan megin í Fáskrúðsfirði. Hlaupinu var ætlað að vekja athygli á þessu merka húsi og sögu þess en einnig að hvetja fólk til hreyfingar og útivistar. Frakkar reistu spítalann í þorpinu á Búðum í Fáskrúðsfirði árið 1904 en Fáskrúðsfjörður var aðalbækistöð franskra sjómanna á austfjörðum. Eftir að hafa staðið í Hafnarnesi í marga áratugi var spítalinn fluttur aftur inn í Búðaþorp haustið 2010. Nú er endurbyggingu spítalans lokið og stendur hann nálægt sínum upprunalega grunni við Hafnargötu. Í spítalanum, ásamt öðrum byggingum í kring, hefur verið opnað glæsilegt hótel.